Hafursstaðir
Hafursstaðir
Fréttir | 06. júlí 2015 - kl. 14:03
Vilja hefja viðræður við stjórnvöld

Sveitarstjórnarmenn úr Húnavatnssýslum og Skagafirði voru á ferð með fulltrúum frá kínverska fyrirtækinu NFC, sendiherra Kína gagnvart Íslandi og eiganda Klappa Development á Hafursstöðum á laugardaginn og kannaði hópurinn aðstæður fyrir álver. Erlendu gestirnir héldu af landi brott í gær eftir fimm daga heimsókn á Íslandi. Sveitarstjórnarmenn vilja hefja viðræður við stjórnvöld og Landsvirkjun um afhendingu á orku.

Ríkisútvarpið hefur verið ötult við að segja fréttir frá þessum málum alla helgina. Í fréttum á laugardaginn sagði Adolf Berndsen, formaður Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar, að staða svæðisins væri með þeim hætti að ekki yrði undan því vikist að horfa til nýrra atvinnuþátta. Störfum hafi fækkað í hefðbundnum atvinnugreinum, ekki megi stunda fiskeldi á svæðinu og þá hafi ferðaþjónustan vaxið alltof hægt. „Við verðum að spyrja okkur að því hvernig við ætlum að láta þetta svæði hérna þróast áfram,“ sagði Adolf.

Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi sagði í sömu frétt að það muni að sjálfsögðu taka tíma að afla orku í verkefnið en að heimamenn vilji sjá að orkan frá Blönduvirkjun sé nýtt í heimahéraði. Hann sagði að sveitarstjórnarmenn vilji hefja viðræður við stjórnvöld og Landsvirkjun um afhendingu á orku og að vonast sé til þess að það verði hægt að afhenda hana sem fyrst.

Í fréttum hefur verið fjallað um fleiri óvissuþætti en orkuöflun í tengslum við fyrirhugaðar álversframkvæmdir á Hafursstöðum eins og fjármögnun rekstrarins og hvort að álver geti reynst arðvænt. Þegar Arnar Þór er spurður hvort hann óttist ekki að verið væri að vekja upp falsvonir um atvinnuuppbyggingu á svæðinu þar sem verkefnið væri á byrjunarreit tekur hann ekki undir það.  „Sígandi lukka er best í þessum efnum og ég er alveg viss um það að íbúar hér á svæðinu þeir sýni þessu skilning að þetta mun taka tíma en svo er bara vonandi að þetta takist hjá okkur,“ sagði Arnar Þór í samtali við Ríkisútvarpið á laugardaginn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga