Fréttir | 06. júlí 2015 - kl. 15:21
Gestum fjölgar á Selasetrið

Gestakomur í Selasetur Íslands á Hvammstanga hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár og var síðasti mánuður engin undantekning. Heildarfjöldi gesta í upplýsingamiðstöðina á Selasetrinu  í júní jókst um tæplega 35% samanborið við sama mánuði í fyrra. Á vef Selasetursins segir að þessi aukning á milli ára sé umtalsvert meiri en aukningin á milli áranna 2013 og 2014. Í júní 2014 komu 14% fleiri gestir í upplýsingamiðstöð Selasetursins en á árinu 2013.

Á árinu 2014 sóttu alls um 20 þúsund gestir upplýsingamiðstöðina heim og má ætla að í ár verði fjöldinn á bilinu 23-25 þúsund gestir. „Það er því ljóst að aukinn fjöldi ferðamanna á landinu er í sí auknu mæli að skila sér í Húnaþing vestra enda er þar að finna áhugaverð svæði til náttúruskoðunar og góða þjónustu fyrir ferðamenn,“ segir á vef Selasetursins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga