Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:35 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:35 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:35 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:35 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:35 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:35 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Bæjarhátíðin Eldur í Húnaþingi verður haldin 22.-26. júlí næstkomandi í þrettánda sinn. Hátíðin hefur skipað sér fastan sess í Húnaþingi vestra undanfarin ár en flestir viðburðir hennar fara fram á Hvammstanga. Ýmsir viðburðir hafa skiptað sér fastan sess á hátíðinni og er Melló Músíka einn af þeim en sá viðburður fer fram á fimmtudagskvöldinu. Undan farin ár hafa verið haldnir tónleikar í Borgarvirki á föstudagskvöldinu og hafa tónlistarmenn á borð við Röggu Gísla, KK, Egil Ólafsson, Hörð Torfa, Regínu Ósk og Ásgeir Trausta spilað og sungið fyrir gesti. Að þessu sinni er það Jón Jónsson sem mun sjá um að framreiða fagra tóna á þessum kyngimagnaða stað.
Að loknum tónleikum í Borgarvirki eða um klukkan 23:00 byrja tónleikar þar sem aðalnúmerið er Skálmöld. Hljómsveitin Rythmatík hitar upp fyrir Skálmöld en hljómsveitin vann Músíktilraunir í ár.
Á laugardeginum er fjölskyldudagurinn haldinn hátíðlegur. Undanfarin ár hefur verið boðið upp á andlitsmálningu og hoppukastala fyrir yngri kynslóðina og grill fyrir alla fjölskylduna. Ásamt því að keppt er á milli fyrirtækja og ungir sem aldnir spreyta sig í sápufótboltakeppni.
Hátíðinni lýkur á laugardagskvöldinu með dansleik. Undanfarin ár hafa hljómsveitir á borð við Buff, Í Svörtum Fötum, Skítamóral og Sniglabandið skemmt hátíðargestum á lokadansleiknum. Að þessu sinni verður það hljómsveitirnar Buff og Lexía sem halda uppi stuðinu.
Útvarp Eldur verður starfrækt á meðan á hátíðinni stendur, FM106,5.
Opnunarhátíðin Elds í Húnaþingi fer fram miðvikudaginn 22. júlí á hafnarsvæðinu, í portinu á milli Sjávarborgar og KVH. Þar verður eldurinn tendraður í eldsmerkinu góða, nýstofnaður Gospelkór Húnaþings vestra flytur nokkur lög og unglistarsjoppan verður á svæðinu. Kjötsúpa verður í boði fyrir gesti og gangandi.
Hátíðin er á Facebook og á vefnum www.eldurhunathing.com.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |