Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:58 0 0°C
Laxárdalsh. 05:58 0 0°C
Vatnsskarð 05:58 0 0°C
Þverárfjall 05:58 0 0°C
Kjalarnes 05:58 0 0°C
Hafnarfjall 05:58 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 29. júlí 2015 - kl. 22:15
Skagafjörður útnefndur gæðaáfangastaður Íslands 2015

Ferðamálastofa hefur útnefnt Skagafjörð gæðaáfangastað Íslands vegna verkefnisins Matarkistan Skagafjörður. Skagafjörður kemst þannig í hóp annarra gæðaáfangastaða í Evrópu sem hafa hlotið EDEN-tilnefningu, en það stendur fyrir European Destination of Excellence. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálastofu.

Ferðamálastofa er fyrir Íslands hönd aðili að Evrópska EDEN-verkefninu. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á gæðum, fjölbreytileika og sameiginlegum einkennum Evrópskra áfangastaða og kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta, áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni.

Af þessu tilefni er haldin samkeppni um gæða áfangastaði í Evrópu annað hvert ár með nýju þema í hvert sinn, en þema ársins 2015 var matartengd ferðaþjónusta. Sérstök valnefnd yfirfór þær umsóknir sem bárust frá íslenskum áfangastöðum en nefndin var skipuð þeim Guðmundi Jóni Guðmundssyni fulltrúa Beint frá býli, Sigríði Kristjánsdóttur fulltrúa Nýsköpunarmiðstöðvar, Ragnheiði Sylvíu Kjartansdóttur fulltrúa Íslandsstofu og Láru Pétursdóttur fulltrúa SAF.

Eftir yfirferð umsókna ákvað valnefnd EDEN verkefnisins á Íslandi að útnefnda Sveitarfélagið Skagafjörð sem gæðaáfangastað Íslands 2015 fyrir verkefnið Matarkistan Skagafjörður. Í niðurstöðu valnefndar segir:

 „Matarkistan Skagafjörður á sér langa sögu og fyrsta samstarfsverkefni sinnar tegundar á sviði matartengdrar ferðaþjónustu hér á landi. Má því segja að verkefnið hafi rutt veginn og undirbúið jarðveginn fyrir önnur slík verkefni víða um land og sé því sannkallað frumkvöðlaverkefni. Afurðir verkefnisins hafa verið margar og fjölbreyttar í gegnum tíðina, en þar má m.a. nefna árlega Hrossaveislu, fyrirlestra og námsefni á vegum Hólaskóla og matreiðslubókina Eldað undir bláhimni. Nefndin telur verkefnið vel að heiðrinum komið og vonast til að tilnefningin verði til að efla enn frekar matartengda ferðaþjónustu í Skagafirði, sem og á landinu öllu.“

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið