Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:20 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:20 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:20 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:20 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:20 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:20 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Mikið hefur verið um að vera á Sauðfjársetrinu á Ströndum í sumar, margvíslegar uppákomur og viðburðir. Framundan er stærsta samkoma ársins, Íslandsmeistaramót í hrútadómum, sem verður haldið sunnudaginn 16. ágúst og hefst klukkan 14:00 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn.
Síðasta ár sigraði Björn Þormóður Björnsson á Ytra-Hóli í Austur-Húnavatnssýslu og landaði því Íslandsmeistaratitlinum í hrútadómum í annað skipti, en hann sigraði áður árið 2005. Í öðru sæti var Kristján Albertsson bóndi á Melum í Árneshreppi en hann hefur fjórum sinnum farið með sigur af hólmi og hafa hæfileikar hans í þessari sérstæðu keppnisgrein vakið mikla athygli. Í þriðja sæti urðu jöfn Helga Guðmundsdóttir í Stykkishólmi og Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum í Strandabyggð.
Á Sauðfjársetrinu eru nú uppi þrjár sérsýningar, fyrir utan fastasýningu safnsins sem ber yfirskriftina Sauðfé í sögu þjóðar. Í kaffistofunni er sýningin Manstu? sem er greiningarsýning á ljósmyndum Tryggva Samúelssonar sem voru teknar á árabilinu 1950-1970. Á listasviðinu er sýningin Álagablettir og í sérsýningarherbergi er sögusýning sem ber yfirskriftina Brynjólfur Sæmundsson og starf héraðsráðunauta. Brynjólfur var ráðunautur á Ströndum í nærri 40 ár og var þessi sýning opnuð á Hrútadómum í fyrra.
Í Sauðfjársetrinu er rekið kaffihúsið Kaffi Kind og þar verður veglegt kaffihlaðborð á boðstólum. Í sumar hefur verið starfræktur Náttúrubarnaskóli á vegum Sauðfjársetursins og verður yfirnáttúrubarnið Dagrún Ósk Jónsdóttir með kynningu á verkefninu á Hrútadómunum.
Safnið verður opið alla daga milli 10-18 út ágústmánuð og um helgar í september. Í haust er stefnt að frekari viðburðum. Þá verða m.a. þjóðtrúarkvöldvaka, handverksnámskeið og leiksýning þar sem draugum á Ströndum verða gerð skil. Árleg sviðaveisla verður haldin í október.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |