Mynd: Jón Kristófer Sigmarsson
Mynd: Jón Kristófer Sigmarsson
Fréttir | 01. september 2015 - kl. 11:45
Byggð verður bráðabirgðabrú yfir Vatnsdalsá

Vegagerðin ætlar að byggja bráðabirgðabrú yfir Vatnsdalsá við bæinn Grímstungu í Vatnsdal og er stefnt að því að hún verði tilbúin eftir um tvær vikur, að því er fram kemur á Mbl.is. Brúin verður um fimmtíu metrum fyrir neðan gamla brúarstæðið og verður hún svipuð og sú sem sett var upp til bráðabirgða í Múlahvísl. Verið er að ljúka við að fjarlægja brúna sem hrundi nýlega.

Aron Bjarnason, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni, segir í samtali við Mbl.is ekki vita hvenær varanleg brú verði byggð yfir ána, það verði ekki fyrr en Vegagerðin fær fjármagn til verkefnisins.

„Þetta er til bráðabirgða, en tilhneigingin með bráðabirgðabrýr, sérstaklega á umferðarminni vegum, er sú að þær vilja standa lengur en ætlunin var,“ segir Aron á Mbl.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga