Arnar Þór, Illugi og Páley Sonja Wium fulltrúi Heimili og skóla
Arnar Þór, Illugi og Páley Sonja Wium fulltrúi Heimili og skóla
Ingó Veðurguð tók lagið "Það er gott að lesa" eftir Bubba Morthens
Ingó Veðurguð tók lagið "Það er gott að lesa" eftir Bubba Morthens
Fréttir | 01. september 2015 - kl. 22:26
Þjóðarsáttmáli um læsi

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, var mættur í Félagsheimilið á Blönduósi í dag til að undirrita „Þjóðarsáttmála um læsi“ ásamt fulltrúa Heimilis og skóla og fulltrúum sveitarfélagana í Austur Húnavatnssýslu, Húnaþingi vestra og Strandabyggð. Illugi hélt stutt ávarp í upphafi fundar og þá hélt Arnar Þór Sævarsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar, ávarp en að því loknu var sáttmálinn undirritaður.

Í kynningarbæklingi um „Þjóðarsáttmála um læsi“ segir m.a. að mennta- og menningarmálaráðuneytið muni haustið 2015 vinna að Þjóðarsáttmála um læsi í samvinnu við sveitarfélög og skóla með það að markmiði að öll börn geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns.

„Framlag ráðuneytisins verður í formi ráðgjafar, stuðnings, lesskimunar og aukins samstarfs við foreldra. Þá kemur einnig fram í bæklingnum að öll börn eigi að fá tækifæri til að eiga daglega lestrarstund til loka grunnskóla. Foreldrar og aðstandendur þurfi að vera virkir þátttakendur í námi barna sinna og fylgjast með framvindu og árangri. Lestrarfærni er forsenda virkrar þátttöku í lýðræðissamfélagi en bágur lesskilningur getur haft neikvæð áhrif á námsframvindu og þar með atvinnutækifæri síðar meir.“

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga