Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:50 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Minjastofnun Íslands hefur gert alvarlegar athugasemdir við að hafist var handa við að brúa Vatnsdalsá við Grímstungu að nýju áður en minjavörður hafði tækifæri til að skoða aðstæður. Þá gerir skipulagsfulltrú alvarlegar athugasemdir við að verkið var hafið áður en framkvæmdaleyfi var gefið út. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps fagnar því hins vegar að framkvæmdir hafi gengið hratt fyrir sig en bráðabirgðabrúin er tilbúin og hefur umferð verið hleypt á hana.
Á sveitarstjórnarfundi Húnavatnshrepps í dag var lagt fram til kynningar erindi frá Vegagerðinni sem sent var í tölvupósti 3. september síðastliðinn og varðar umsókn um framkvæmdaleyfi til að byggja bráðabirgðabrú yfir Vatnsdalsá við Grímstungu og vegtengingar að henni. Jákvæðar umsagnir bárust frá Veiðimálastofnun, Veiðifélagi Vatnsdalsár, Fiskistofu og landeigendum og gaf skipulagsfulltrúi út framkvæmdaleyfi 11. september síðastliðinn að fengnum tilskyldum umsögnum.
Brúin yfir Vatnsdalsá fremst í Forsæludal við Grímstungu hrundi 18. ágúst síðastliðinn þegar flutningabíll með eftirvagn ók yfir hana. Verið var að flytja farm yfir brúna vegna framkvæmda í dalnum þegar hún hrundi. Í kjölfarið krafðist sveitarstjórn Húnavatnshrepps þess að Vegagerðin myndi byggja nýja brú yfir ána sem fyrst á svipuðum stað til að samgöngur innan sveitarfélagsins yrðu tryggðar.
Vegagerðin gaf það út í byrjun þessa mánaðar að hún ætlaði að byggja bráðabirgðabrú yfir Vatnsdalsá og yrði hún um fimmtíu metrum neðan en gamla brúarstæðið. Brúarsmíðin átti að taka tvær vikur. Bráðabirgðabrúin er nú tilbúin og hefur umferð verið hleypt á hana eins og áður sagði.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |