Fréttir | 30. september 2015 - kl. 14:21
Íþróttadagurinn í Blönduskóla
Dagskrá frá kl. 8:00-12:15 á morgun

Íþróttadagur Blönduskóla verður á morgun fimmtudaginn 1. október og hefst kl. 8:00 á Norræna skólahlaupinu þar sem nemendur og kennarar velja sér vegalengd við hæfi, þ.e. 2,5 km eða 5 km. Áhersla er lögð á að allir séu með og hver og einn hlaupi á sínum hraða. Allir verði með endurskinsmerki og klæði sig vel.

Að loknu hlaupinu hefst dagskrá í íþróttasalnum þar sem m.a. er boðið upp á boccia, fitnessbraut, klifurkeppni, pílukastkeppni, hittnikeppni með baunapoka og fleira. Dagskráin stendur yfir frá kl. 8:00-12:15 og engin kennsla eftir hádegi. Foreldrar og aðrir gestir eru velkomnir.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga