Fréttir | 02. október 2015 - kl. 12:28
Hittingur í Perlunni

Mánaðarlegur hittingur hjá brottfluttum húnvetnskum konum verður í Perlunni á laugardaginn 3. október og er mæting kl. 12:00. Á þessum hittingum er mikið spjallað og sögur sagðar af öllu mögulegu og ómögulegu. Alltaf gaman að sjá ný andlit og tilvalið fyrir konur sem ætla að skreppa í borgina um helgina að líta við í Perlunni og fá sér hádegismat og létt spjall.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga