Fréttir | 02. október 2015 - kl. 12:09
16 sóttu um starf framkvæmdastjóra SSNV

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) auglýstu í upphafi mánaðarins eftir framkvæmdastjóra og rann umsóknarfrestur út þann 21. september. 16 einstaklingar sóttu um starfið og eru þeir eftirfarandi:

  • Anna Rósa Böðvarsdóttir

  • Björn Líndal Traustason

  • Drífa Sigfúsdóttir

  • Einar Örn Stefánsson

  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir

  • Guðbjörg Eggertsdóttir

  • Gunnólfur Lárusson

  • Hallur Magnússon

  • Heimir Gunnarsson

  • Hrafnhildur Guðjónsdóttir

  • Jónas Egilsson

  • Kristinn Pétursson

  • Magnús Bjarni Baldursson

  • Ómar Örn Hannesson

  • Sigurður Hólmar Kristjánsson

  • Vigdís Ósk Ómarsdóttir

    SSNV er þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og sér um mikilvæga sameiginlega málaflokka og hagsmunamál sveitarfélaga á starfssvæðinu. Verkefni SSNV eru fjölbreytt og snúa að hagsmunum svæðisins, atvinnuþróun og rekstri sameiginlegra verkefna sveitarfélaganna sem að því standa.

     

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga