Myndin er af Facebook síðu Húna.
Myndin er af Facebook síðu Húna.
Fréttir | 07. október 2015 - kl. 09:42
Kínverjar í vandræðum á Vatnsnesi

Björgunarsveitin Húnar brást fljótt við kalli lögreglunnar seinni partinn í gær þegar ósk barst um aðstoð. Kínverskir ferðamenn höfðu lent í hremmingum á bílaleigubíl sínum við Geitafell á Vatnsnesi. Bíllinn lenti utan vegar og þykir mildi að ekki fór verr. Farið var með fólkið á Hvammstanga. Fram kemur á Facebook síðu Húna að þetta séu ekki fyrstu ferðamennirnir sem lent hafi utan vegar á veginum um Vatnsnes.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga