Fréttir | 08. október 2015 - kl. 15:51
Umsóknir um styrki úr bæjarsjóði

Menningar-, æskulýðs- og íþróttasamtök, sem hyggjast sækja um styrki úr bæjarsjóði Blönduósbæjar vegna starfsemi sinnar fyrir árið 2016 þurfa að senda umsókn til bæjarskrifstofunnar á Blönduósi fyrir 14. október næstkomandi. Þetta kemur fram í auglýsingu frá Blönduósbæ. Umsækjendum er þar bent á að eyðublöð megi finna á vef sveitarfélagsins.  

Umsóknum skal skilað til:
Bæjarskrifstofan
b.t. bæjarstjóra
Hnjúkabyggð 33
540 Blönduós

Umsóknarfrestur er til 14. október næstkomandi.

Lögð er áhersla á að við móttöku styrkja sé gerður samningur við sveitarfélagið þar sem samstarf er nánar skilgreint. Styrkþegum sem þegið hafa styrki á þessu ári er bent á að skila þarf inn stuttri greinargerð um ráðstöfun styrkja. Nánari upplýsingar eru á umsóknareyðublaði.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga