Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 09. október 2015 - kl. 13:00
Byggðaráð vill atvinnuráðgjafa á Blönduós

Byggðaráð Blönduósbæjar furðar sig á að Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafi ekki lokið við að ráða atvinnuráðgjafa á Blönduós að nýju eins og rætt hafi verið um á ársþingi SSNV á Hvammstanga árið 2014. Byggðaráð krefst þess að stjórn SSNV gangi frá ráðningu atvinnuráðgjafa á Blönduós eins fljótt og auðið er.

Þetta kemur fram í bókun byggðaráðs sem lögð var fram á fundi ráðsins síðastliðinn miðvikudag. Í henni segir einnig að á svæðinu séu uppi miklar hugmyndir um atvinnuuppbyggingu og að mikil þörf sé fyrir markaðs- og kynningarstarf á atvinnustarfsemi sem fyrir er til að mynda ferðaþjónustu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga