Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:40 0 0°C
Laxárdalsh. 14:40 0 0°C
Vatnsskarð 14:40 0 0°C
Þverárfjall 14:40 0 0°C
Kjalarnes 14:40 0 0°C
Hafnarfjall 14:40 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Mynd: Vísindavefurinn
Mynd: Vísindavefurinn
Fréttir | 12. október 2015 - kl. 10:44
Eyða á skógarkerfli með skipulögðum hætti

Húnavatnshreppur ætlar að eyða skógarkerfli í sveitarfélaginu með skipulögðum hætti á vordögum næsta árs. Í fréttabréfi Húnavatnshrepps biðlar sveitarstjóri til íbúa að senda sér upplýsingar um umfang skógarkerfils í þeirra landi fyrir 26. október næstkomandi. Skógarkerfill hefur verið að dreifa sér í Húnavatnshreppi undanfarin ár og kortleggja á hvar hann sé byrjaður að sá sér. Vinna á að því að hefta útbreiðslu hans með slætti að lágmarki þrisvar á sumri hverju.

Málið var fyrst til umræðu á fundi sveitarstjórnar í fyrr en í fundargerð sveitarstjórnar frá 8. ágúst 2014 segir að skógarkerfill sé vágestur sem dreifir sér hratt þar sem hann hafi náð að sá sér. Sé það helst á svæðum sem búpeningi sé ekki beitt og sé því líklegast að hann dreifi sér í vegköntum og skurðum og skurðbökkum sem séu afgirtir.

Einnig segir í fundargerðinni að Í Húnavatnshreppi hafi hann verið fram undir þetta á mjög afmörkuðum svæðum eins og til dæmis í kringum og út frá Laxárvatnsvirkjun. Þar sem hann hafi náð að breiða úr sér verði gróðurþekjan mjög einsleit og kaffæri hann annan gróður á þeim svæðum.

Þá segir að helst sé hægt að koma í veg fyrir að hann dreifi sér í miklu mæli ef ráðist sé gegn honum sem fyrst þar sem hann hafi stungið sér niður. Árangursríkasta aðferðin virðist vera að slá hann sem fyrst á vorin og sem oftast yfir sumarið þannig að hann nái ekki að fella fræ.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið