Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:11 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:11 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:11 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:11 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:11 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:11 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í byrjun mánaðarins boðaði Markaðsstofa Norðurlands til funda um vegamál en Markaðsstofan er nú orðin tengiliður ferðaþjónustunnar á Norðurlandi við Vegagerðina. Á fundunum gafst ferðaþjónustuaðilum, sveitarstjórnarmönnum og öðrum sem áhuga höfðu á málefninu að koma á framfæri sínum áherslum varðandi þjónustu, viðhald og uppbyggingu vegakerfisins.
Fundirnir á Norðurlandi vestra voru haldnir 1. október og fóru þeir fram á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Að því er fram kemur á Feyki.is var Kjalvegur, Þingeyrarvegur og vegurinn í gegnum Blönduós meðal brýnustu verkefna sem voru til umræðu. Vegurinn niður að Þingeyrum er sagður mjór, holóttur og ekki mikið viðhaldinn en þar jafnan er mikill ferðamannastraumur. Vegakaflinn gegnum Blönduós og norður að gatnamótum við Þverárfjall er orðinn gamall og hættulegur, eins er brúin yfir Blöndu orðin gömul og léleg.
Það sem brann heitast á fundarmönnum á Hvammstanga, að því er fram kemur á Feyki.is, var Vatnsnesvegurinn en viðstaddir voru sammála um þar ríður mest á úrbótum. Byggja þurfti þann veg upp en gríðarlegur fjöldi ferðamanna fer þar um, um 250 bílar á dag, yfir hásumarið.
Einnig var rætt um Norðurbraut, gatnamótin við Laugarbakka, planið við Hvammstanga afleggjarann sem er of lítið. Talað var um brú yfir Norðlingafljót til þess að loka ákveðinni leið af heiðinni og vestur, niður að Húsafelli.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |