Fréttir | 13. október 2015 - kl. 22:19
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga óskar eftir ábendingum frá íbúum Austur-Húnavatnssýslu um íþróttafólk sem sýnt hefur góðan árangur í keppnisgrein sinni árið 2015 vegna tilnefningar til íþróttamanns ársins hjá USAH. í auglýsingu frá USAH segir að tilnefna megi þá sem æfa og keppa innan aðildarfélaga USAH ásamt þeim sem eiga lögheimili í sýslunni en æfa með öðrum félögum.
Ábendingar skulu berast stjórn USAH fyrir 12. desember næstkomandi. Ábendingum og greinagerð yfir árangur ársins skal skilað á netfangið usah540@simnet.is.