Fréttir | 15. nóvember 2015 - kl. 20:48
Laxasetur Íslands ehf. hættir rekstri sýningar að Efstubraut

Laxasetur Íslands, sem opnað var að Efstubraut 1 í júní 2012, hefur hætt rekstri. Ákvörðun um það var tekin á aðalfundi félagsins í síðasta mánuði. Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson, formaður Laxaseturs Íslands ehf., hefur sent frá sér fréttatilkynningu fyrir hönd stjórnar Laxasetursins.

„Á aðalfundi Laxaseturs Íslands þann 28. október síðastliðinn var ákveðið að hætta rekstri sýningarinnar að Efstubraut 1. Reksturinn hefur ekki gengið sem skyldi þrátt fyrir ýmsar tilraunir til að renna styrkari stoðum undir hann. Fyrir hönd Laxasetursins vil ég þakka þeim einstaklingum og félögum sem lögðu okkur lið í uppbyggingu og rekstri“.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga