Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:47 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:47 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:47 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:47 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:47 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:47 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Á FeykirTV má finna netþætti sem bera yfirskriftina Fyrirmyndarfrumkvöðlar. Þættirnir fóru í loftið um miðjan síðasta mánuð en þeir eru framleiddir af Feyki og Skottu kvikmyndafjelagi með styrk frá Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra til þáttagerðarinnar. Um er að ræða sjö þætti. Í þáttunum er rætt við forsvarsmenn frumkvöðlafyrirtækja á Norðurlandi vestra. Í síðasta þættir var fjallað um Ísgel á Blönduósi.
Í fyrstu sex þáttunum voru fyrirtæki heimsótt og farið var yfir starfsemina, allt frá hugmynd til framleiðslu, og viðmælendur inntir eftir því hvernig ferlið gengi fyrir sig og hvernig staðið var að hinum ýmsu þáttum starfseminnar. Í lokaþættinum koma viðmælendur allra sex fyrirtækjanna saman, ásamt þriggja manna ráðgjafanefnd, og ræða um frumkvöðlastarf.
Í síðasta þætti, sem var sá sjötti í röðinni, var rætt við Zophonías Ara Lárusson, einn eiganda Ísgels á Blönduósi. Fyrirtækið framleiðir gelmottur sem viðhalda kælingu ferskra matvæla á meðan á flutningi stendur, frystipoka, margnota kæli- og hitagelpoka og einnota kælipoka sem eru góðir fyrir íþróttafólk og í sjúkrakassann.
Sífellt fleiri fiskvinnslufyrirtæki eru að taka gelmotturnar í notkun við flutning á fiski með flugfrakt. Þær þykja að mörgu leyti hentugri en ís, minna þarf af mottunum og ekki er hætta á leka. Í þættinum sagði Zophonías frá því hvernig fyrirtækinu hafi vaxið fiskur um hrygg eftir efnahagshrunið með batnandi afkomu sjávarútvegarins og auknum fiskútflutningi. Þá fór fyrirtækið í markaðsherferð til Noregs og Færeyja og eru þeir bjartsýnir á að það muni skila sér með auknum umsvifum út fyrir landsteinanna.
Þáttinn um Ísgel, sem og hina fimm má sjá hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |