Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:29 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Áætlun að mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs álvers við Hafursstaði í Skagabyggð liggur nú fyrir og hefur verið áætur gangur í viðræðum um orkuöflun, að því er fram kemur hjá Ingvari Unnsteini Skúlasyni, framkvæmdastjóra Klappa Development ehf. í Morgunblaðinu í dag. „Ef ekkert óvænt gerist tilkynnum við með vorinu að bygging álversins verði að veruleika,“ segir Ingvar.
Í Morgunblaðinu kemur fram að fulltrúar Klappa, sveitarfélaga á svæðinu og verkfræðingar hafi farið til Kína í síðasta mánuði til að kynna sér álframleiðslu þar og glöggva sig almennt á málavöxtu. Í fréttinni segir einnig að Landsnet sé tilbúið til viðræðna við sveitarfélögin svo skýra megi flutningsþörf raforku og þar með staðsetningu háspennulína.
Haft er eftir Ingvari að framkvæmdir eigi samkvæmt þessu að geta farið af stað á árinu 2017 og að þeim eigi að ljúka árið 2019. Þá sé reiknað með að orkufyrirtækin verði tilbúin með rafmagn fyrir álverið. Áhugi fjárfesta sé skýr en að aðkoma þeirra verði þó ekki staðfest fyrr en öllu undirbúningsstarfi sé lokið og það verði væntanlega í maí eða júní á næsta ári. Kostnaður við byggingu fyrsta áfanga er áætlaður um 70 milljarðar króna.
Sem kunnugt er hafa sveitarfélögin á Norðurlandi vestra undirritað samstarfssamning við Klappir Development ehf. um uppbyggingu og rekstur á 120.000 tonna álveri á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Hafursstaði í Skagabyggð. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Akrahreppur, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður.
Áætlanir gera ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tímabundnum störfum á byggingartíma. Orkuþörf álversins er 206 MW, sem reiknað er með að komi frá Blönduvirkjun í samræmi við vilja og samkomulag heimamanna og stjórnvalda þegar virkjunin var byggð. Tímasetning á afhendingu á orku frá Blönduvirkjun til álvers á Hafursstöðum byggist m.a. á að þá verði fyrir hendi orka til afhendingar til núverandi viðskiptavina virkjunarinnar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |