Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:29 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipta fyrir byggðalög sem fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerðum á fiskveiðiárinu 2015/2016. Á dögunum úthlutaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson byggðakvóta til 32 sveitarfélaga en um var að ræða 5.662 þorskígildistonn. Sveitarfélög í Húnavatnssýslum fengu samtals 415 tonn úthlutað og fékk Skagaströnd mest eða 300 tonn. Hvammstangi fékk 70 tonn og Blönduós 45 tonn.
Auglýsing Fiskistofu er eftirfarandi:
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 605/2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016:
Grundarfjarðarbær (Grundarfjörður)
Vesturbyggð (Patreksfjörður)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1043/2015 í Stjórnartíðindum
Árborg (Stokkseyri, Eyrarbakki)
Garður
Vogar
Vesturbyggð (Brjánslækur/Barðaströnd)
Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur, Ísafjörður)
Strandabyggð (Hólmavík)
Húnaþing vestra (Hvammstangi)
Blönduósbær (Blönduós)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur, Hauganes)
Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2015.
Fiskistofa 20. nóvember 2015
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |