Mynd: Hunavatnshreppur.is
Mynd: Hunavatnshreppur.is
Fréttir | 25. nóvember 2015 - kl. 22:02
Árshátíð í Húnavallaskóla

Árshátíð Húnavallaskóla verður haldin föstudaginn 27. nóvember næstkomandi og hefst hún klukkan 20:30 en húsið opnar klukkan 20:00. Fjölbreytt skemmtiatriði verða í boði, leiksýningar og tónlistaratriði. Nemendur í 9. og 10. bekk frumflytja leikritið Óvissuferð sem þeir unnu með Guðjóni Sigvaldasyni sem leikstýrir. Eftir skemmtiatriðin verður hið rómaða veislukaffi. Svo verður dansað til klukkan 01:00.

Miðaverð (innifalið er kaffihlaðborð):

2.500 kr. fyrir 16 ára og eldri
1.000 kr. fyrir 7-15 ára.
Frítt fyrir 6 ára og yngri.

Skólablaðið Grettistak verður selt á staðnum á 1.200 kr. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga