Fréttir | 28. nóvember 2015 - kl. 11:47
Jólamarkaður í Húnaveri í dag

Í dag milli klukkan 14 og 18 verður Jólamarkaður í Húnaveri. Á boðstólum verður fullt af flottum varningi. Kvenfélag Svínavatnshrepps verður með fjáröflun á staðnum. Í boði verður nýsteiktar kleinur, partar, gott í poka, glæsifatnaður af ýmsu tagi, brjáluð tombóla og engin núll.  Allur ágóði rennur beint til Jólasjóðs Rauða krossins í Austur-Húnavatnssýslu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga