Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:25 0 0°C
Laxárdalsh. 16:25 0 0°C
Vatnsskarð 16:25 0 0°C
Þverárfjall 16:25 0 0°C
Kjalarnes 16:25 0 0°C
Hafnarfjall 16:25 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar. Mynd: Skagaströnd.is
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar. Mynd: Skagaströnd.is
Fréttir | 28. nóvember 2015 - kl. 12:19
Viljayfirlýsing um mál- og læsisstefnu

Skólastjórnendur leik-og grunnskóla í Austur-Húnvatnssýslu, Húnaþingi vestra og leikskólanum á Hólmavík undirrituðu þann 24. nóvember síðastliðinn viljayfirlýsingu um að vinna sameiginlega að sameiginlegri mál- og læsisstefnu skólanna í samræmi við ákvæði í aðalnámskrá leik- og grunnskóla. Markmiðið er að efla málþroska og færni allra nemenda á báðum skólastigum er varðar læsi í víðum skilningi. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Stefnt skal að því að vinna heildstæða mál- og læsisstefnu fyrir leik- og grunnskóla en hver skóli mun síðan í framhaldinu móta sína eigin stefnu sem tekur mið af þeirri sameiginlegu. Í grunnskólunum er nú unnið að þróunarverkefninu Orð af orði undir handleiðslu Guðmundar Engilbertssonar lektors við Háskólann á Akureyri. Í leikskólunum er unnið að þróunarverkefninu Málþroski og læsi, færni til framtíðar og þar er verkefnastjóri Ásthildur Bj. Snorradóttir talmeinafræðingur.

Í hverjum skóla er starfandi teymi sem ber ábyrgð á faglegri vinnu varðandi mál og læsi innan hvers skóla en tengiliðir frá skólunum hittast reglulega og vinna að sameiginlegri stefnu.

Markmiðið með þessari vinnu er að efla málþroska og færni allra nemenda á báðum skólastigum er varðar læsi í víðum skilningi og með áherslu á snemmtæka íhlutun. Ábyrgðamenn verkefnisins í leikskólunum eru Guðrún Lára Magnúsdóttir leikskólastjóri í Ásgarði og Borðeyri og Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri Austur Húnavatnssýslu sem einnig er ábyrgðarmaður fyrir verkefninu í grunnskólunum ásamt Kristínu Ólöfu Þórarinsdóttur aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið