Kristín Ósk og Anna Margrét. Ljósmynd: BÞ/Feykir.is
Kristín Ósk og Anna Margrét. Ljósmynd: BÞ/Feykir.is
Fréttir | 04. febrúar 2016 - kl. 16:35
Dreymir um meiri menningu í Félagsheimilinu

Anna Margrét Arnardóttir og Kristín Ósk Bjarnadóttir sem nýlega tóku við rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi eru í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í dag. Það er draumur þeirra að meiri menning verði í húsinu. Hugsun þeirra er að fá fleira fólk og nýta það betur. „Okkur dreymir um að það verði ekki bara stórir viðburðir heldur að húsið verði nýtt betur undir smærri viðburði, s.s. fundi, ráðstefnur og veislur og að við getum sniðið húsið eftir þörfum,“ segir þær Anna Margrét og Kristín Ósk í viðtalinu.

Þær viðurkenna að þegar þær ákváðu að taka að sér rekstur Félagsheimilisins vissu þær ekki alveg hvað þær voru að koma sér útí, bæði hvað varðar ástand og aðbúnað hússins en einnig hafi þær þurft að demba sér í að kynna sér skemmtanabransann. Þær hafi þó fullan stuðning eiginmanna sinna og barna sem taka óspart þátt í þessu nýja ævintýri með þeim.

Þær segja að húsið sé stórt og glæsilegt og að það bjóði upp á ótal möguleika undir fjölbreytt starf og viðburði fyrir Blönduósinga og nærsveitunga. Það hafi verið illa nýtt og að kominn sé tími á viðhald á ýmsu, bæði að innan sem utan. Það sé því ærið verk fyrir höndum. Þær segjast hafa ákveðið að hella sér í þetta verkefni af einskærri hugsjón um að blása lífi í menningarlíf svæðisins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga