Fréttir | 09. febrúar 2016 - kl. 15:20
Grímuball Blönduskóla í Félagsheimilinu

Árlegt grímuball Blönduskóla verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi miðvikudaginn 10. febrúar. Húsið opnar kl. 18:30, að því loknu verður marserað, dansað, kötturinn sleginn úr tunnunni og dansað meira. Dagránni líkur svo kl. 20:15.

Börn, foreldrar og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir á ballið en miðaverð er kr. 400 fyrir grímuklædda, kr. 800 fyrir aðra en frítt er fyrir yngri en 6 ára. Ekki er hægt að greiða með kortum.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga