Fréttir | 06. febrúar 2016 - kl. 11:08
Ámundakinn er framúrskarandi fyrirtæki

Ámundakkinn ehf. er eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum landsins. Tæplega 36 þúsund fyrirtæki eru skráð á Íslandi og af þeim uppfylla aðeins 682 stranga kröfur sem Creditinfo setur fyrir því að fá að teljast til framúrskarandi fyrirtækja. Starfsemi Ámundakinnar ehf. er aðallega tvíþætt, annarsvegar eignarhald og rekstur húsnæðis (leiga) og hinsvegar eignaraðild og þátttaka í rekstri fyrirtækja.

Síðast liðið sumar keypti félagið gamla vélsmiðjuhúsið á Norðurlandsvegi 4 og er nú unnið að miklum endurbótum á því húsi. Áætlað er að þeim ljúki á næsta ár, en fljótlega munu nýir aðilar flytja þar inn með sína starfsemi.

Stjórn Ámundakinnar skipa: Valgarður Hilmarsson, stjórnarformaður, Pétur Grétarsson og Jón Gíslason, meðstjórnendur. Framkvæmdastjóri félagsins er Jóhannes Torfason.

Þetta er sjötta árið í röð sem Creditinfo tekur saman lista yfir fyrirtæki sem uppfylla fjölmörg skilyrði sem sett eru til að fá að bera þennan eftirsótta titil. Aðeins 178 fyrirtæki uppfylltu skilyrðin árið 2010, og hefur fjöldi þeirra því nærri fjórfaldast á sex árum.

Þau fyrirtæki sem komast á lista Creditinfo sýna stöðugleika í rekstri og skapa þannig verðmæti og störf. Þau standa á traustum stoðum og eru því jafnframt ekki líkleg til að valda samfélaginu kostnaði.

Til að komast á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki þarf að uppfylla ýmis skilyrði. Skilyrðin eru m.a. þau að hafa skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár, líkur á alvarlegum vanskilum séu undir 0,5% og að rekstrarhagnaður hafi verið jákvæður þrjú ár í röð. Þá þarf eiginfjárhlutfallið að hafa verið 20% eða meira og eignir 80 milljónir eða meira þrjú rekstrarár í röð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga