Fréttir | 09. febrúar 2016 - kl. 19:54
Bók um Húnvetnskar þjóðsögur

Hjá Bókaútgáfunni Merkjalæk er komin út bókin „Húnvetnskar þjóðsögur“. Um er að ræða 62 sögur úr þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar. Sögurnar eiga það sameiginlegt að tengjast Húnavatnssýslu á einhvern hátt. Sögusviðið er að mestu leyti Húnavatnssýsla og persónurnar, ein eða fleiri, eru Húnvetningar. Guðráður B. Jóhannsson á Beinakeldu myndskreytti bókina sem er kilja, alls 109 blaðsíður.

Pétur M. Sigurðsson og Sigurður H. Pétursson sáu um ritstjórn, textavinnu og umbrot. Guðráður B. Jóhannsson hannaði kápuna.  

Bókin er fyrst um sinn seld beint frá útgefanda á 2.500 krónur með sendingakostnaði, s. 8923215, netf. sighp@emax.is.

Í formála bókarinnar segir m.a.:
„Sögurnar eru allar teknar úr þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar og fer vel á því þar sem Jón Árnason var sjálfur Húnvetningur. Foreldrar Jóns voru séra Árni Illugason, sóknarprestur á Hofi á Skagaströnd og kona hans Steinunn Ólafsdóttir sem var frá Harastöðum í sömu sveit. Hann hóf söfnun þjóðsagna árið 1845 í samvinnu við séra Magnús Grímsson. Þegar Magnúsar naut ekki lengur við hélt hann ótrauður áfram söfnuninni með vaxandi áhuga. Hann skrifaða m.a. fjölda manna og kvenna og fékk þau til að safna fyrir sig sögum. Hann taldi Ísland vera sannkallað sagnaland sem hann orðaði svo: Ísland var eitthvað hið ágætasta söguland til forna. Hann taldi að þjóðsögurnar væru samofnar þjóðarandanum. Munnmælasögur eru skilgetnar dætur þjóðarandans.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga