Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 19:50 0 0°C
Laxárdalsh. 19:50 0 0°C
Vatnsskarð 19:50 0 0°C
Þverárfjall 19:50 0 0°C
Kjalarnes 19:50 0 0°C
Hafnarfjall 19:50 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 10. febrúar 2016 - kl. 22:49
Lækkum leiguverð
Eftir Elsu Láru Arnardóttur

Það er staðreynd að veruleg fjölgun hefur átt sér stað á leigumarkaði, frá árinu 2008. 20,8 % heimila voru á leigumarkaði árið 2014, samanborið við 12,9 % árið 2008. Auk þessa hafa kannanir, m.a. frá ASÍ sýnt fram á að margir þeirra sem búa á leigumarkaði, búa við verulega þungan húsnæðiskostnað. Algengt er að sá húsnæðiskostnaður nemi á bilinu 40 – 70 % af ráðstöfunartekjum.

237 milljarðar frá 2008
Frá árinu 2008 hefur verið farið í umfangsmiklar aðgerðir í húsnæðismálum. Nema þær aðgerðir að heildarumfangi 237 milljörðum. Má þar helst nefna framlag til Íbúðarlánasjóðs, í vaxtabætur, sérstakar vaxtabætur og leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum. En þessar aðgerðir hafa ekki skilað sér til þeirra sem búa á leigumarkaði. Því er kominn tími til að ráðast í verulegar umbætur á leigumarkaðsmálum.

Bætum ástandið
Þessa dagana vinnur velferðarnefnd þingsins með húsnæðisfrumvörp sem ætlað er að bæta ástandið á leigumarkaðnum. Unnið er að því að fjölga íbúðum um 2300 talsins, á þessu og næstu þremur árum. Unnið að því að auka húsnæðisbætur til leigjenda, styrkja húsnæðissamvinnufélög og lagfæra núverandi húsaleigulög. Áætlað er að umrædd frumvörp verði afgreidd út úr velferðarnefnd á næstu vikum og mikilvægt er að frumvörpin komist hratt og vel í gegnum þingið. Þessi frumvörp eru tengd kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

Frumvörpin ná markmiði sínu
Á dögunum birti Seðlabanki Íslands umsögn vegna húsnæðisfrumvarpanna er varða almennar íbúðir og húsnæðisbætur. Í umsögnum bankans kemur fram að áhrif frumvarpanna verði í samræmi við þau markmið sem frumvörpunum er ætlað að ná, það er að koma á móts við húsnæðiskostnað leigjenda.  Um frumvarp um húsnæðisbætur segir í umsögn Seðlabankans  … ,,það felur í sér að þær fjölskyldur sem njóta kostnaðarþátttöku ríkisins samkvæmt frumvarpinu munu með tímanum þurfa að ráðstafa nokkru minni hluta tekna sinna en ella til húsnæðis og þar af leiðandi hafa meira til ráðstöfunar í aðrar neysluvörur og sparnað.“ Í umsögn Seðlabankans um almennar íbúðir fyrir efnaminni leigjendur segir … ,,með frumvarpinu er lagt til að verulegum fjárhæðum verði varið til uppbyggingar á leiguhúsnæði sem verði ráðstafað til tekjulágra og annarra sem tilgreindir eru í frumvarpinu. Að öðru óbreyttu mun slíkt leiða til þess að leiguverð á slíkum íbúðum lækkar.

Þessi umsögn er í samræmi við það sem ráðgjafafyrirtækið Analytica benti á, í umsögn sinni þegar umrædd frumvörp voru til vinnslu innan velferðarráðuneytisins.

Ánægjulegt er að sjá, að stutt sé í að umrædd frumvörp verði að lögum. Til hagsbóta fyrir einstaklinga og fjölskyldur í landinu.

Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið