Fréttir | 11. febrúar 2016 - kl. 09:12
Svínavatn 2016

Ísmótið Svínavatn 2016 verður haldið laugardaginn 5. mars næstkomandi á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og í opnum flokki í tölti. Keppnisfyrirkomulag verður með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár, að því er fram kemur á vef mótsins.

Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur á hestanetmiðlum og á vef mótsins.

Vegleg peningaverðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti í hverjum flokki. Eins og venjulega verður gott hljóðkerfi á staðnum og dagskránni útvarpað.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga