Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:01 0 0°C
Laxárdalsh. 14:01 0 0°C
Vatnsskarð 14:01 0 0°C
Þverárfjall 14:01 0 0°C
Kjalarnes 14:01 0 0°C
Hafnarfjall 14:01 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 11. febrúar 2016 - kl. 09:33
Stjórn SSNV mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á póstdreifingu á Norðurlandi vestra

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra mótmælir harðlega ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar um að heimila Íslandspósti að draga úr póstdreifingu í aðildarsveitarfélögunum sjö sem standa að SSNV. Einnig mótmælir stjórn SSNV ákvörðun Íslandspósts þess efnis að draga úr þjónustu við íbúa Norðurlands vestra. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn SSNV hefur sent til forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar, forstjóra Íslandspósts og innanríkisráðherra.

Í ályktuninni segir:

„Ákvarðanir ofangreindra aðila gera það að verkum að enn er vegið að þeirri grunþjónustu sem sjálfslögð og eðlileg þykir víðast hvar. Vert er að geta þess að þjónustuskerðingin tekur til um eða eitt þúsund (um 1/3 hluta) heimila/fyrirtækja á Norðurlandi vestra.

Ofangreind þjónustuskerðing byggir á lögum nr. 19/2002 og reglugerð um framkvæmd laganna nr. 868/2015, og að mestu á 2. málsgrein 10. gr. reglugerðarinnar.

2. mgr. 10 gr. hljóðar svo:
Á dreifbýlissvæðum, þar sem kostnaður við dreifingu er þrefaldur eða meiri miðað við sams konar kostnað í þéttbýli, er rekstrarleyfishafa heimilt að fækka dreifingardögum í annan hvern virkan dag. Rekstrarleyfishafi skal senda Póst- og fjarskiptastofnun tilkynningu þessa efnis með rökstuddri greinargerð um kostnað. Stofnunin skal yfirfara og staðreyna útreikninga rekstrarleyfishafa og eftir atvikum hafna eða samþykkja umsókn, innan þriggja mánaða.

Stjórn SSNV efast um lögmæti ofangreinds ákvæðis reglugerðarinnar og ákvarðanna ofangreindra aðila og minnir á að samkvæmt 21. gr. laga nr. 19/2001 skal Póst- og fjarskiptastofnun tryggja að alls staðar á landinu sé alla virka daga borinn út póstur sem fellur undir skilgreiningu á alþjónustu nema kringumstæður og landfræðilegar aðstæður hindri slíkt.

Í greinargerð með frumvarpi að ofangreindum lögum segir um 21. gr.:
Hér er fært í lög að póstsendingar innan marka alþjónustu skulu bornar út alla virka daga alls staðar á landinu nema kringumstæður eða landfræðilegar aðstæður komi í veg fyrir útburð. Slíkar kringumstæður geta verið ófærð og óveður eða sérstakar landfræðilegar aðstæður. Póst- og fjarskiptastofnun gerði árið 1999 könnun á möguleikum þess að koma á útburði pósts hvern virkan dag alls staðar á landinu. Kostnaður á ári var þá áætlaður tæplega 100 millj. kr. umfram þáverandi kostnað við útburð pósts. Með því að fella útburð pósts á virkum dögum undir alþjónustukvaðir verður að gera ráð fyrir að almenn gjaldskrá rekstrarleyfishafa sem veitir alþjónustu verði að hækka samsvarandi.

Hvergi í lögum nr. 19/2002 er gefin heimild fyrir afslætti á þessum skyldum öðrum en þeim sem fram koma í 21. gr. þ.e. að einungis „kringumstæður eða sérstakar landfræðilegar aðstæður“ komi í veg fyrir að póstdreifing eigi sér stað alla virka daga. Heimild til skerðingar póstdreifingar á fjárhagslegum forsendum er ekki til staðar og í lögskýringargögnum kemur fram að ætlunin hafi einmitt verið að gjaldskrá þjónustuaðila yrði að taka mið af þessum skyldum og því verður engan veginn séð að 2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar hafi stoð í lögunum. Það er og viðurkennd staðreynd að aðgerðir/ákvarðanir stjórnvalda, m.a. reglugerðir, sem eru íþyngjandi fyrir þegnana verði að hafa skýra og afdráttarlausa lagaheimild, en svo er alls ekki í þessu tilfelli. Auk þessara ofangreindu atriða er það að mati stjórnar SSNV algerlega óásættanlegt að skerða eigi opinbera þjónustu sem þessa við 1/3 hluta íbúa á Norðurlandi vestra og skerða með því samkeppnishæfni svæðisins enn frekar.

Í ljósi ofangreinds mótmælir stjórn SSNV harðlega ákvörðunum Póst- og fjarskiptastofnunar og Íslandspósts og krefst þess að fyrrgreindar stofnanir draga ákvarðanir sínar til baka.“

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið