Fréttir | 12. febrúar 2016 - kl. 15:23
Ný sýning í Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna

Sunnudaginn, 14. febrúar, klukkan 14, opnar í Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði sýningin „Mitt er þigg og þitt er mitt“ – konur á fyrri tíð. Á sýningunni er fjallað um líf kvenna á Íslandi á fyrri tíð og frásagnir af konum af safnasvæðinu eru dregnar fram í dagsljósið. Hér er því einstakt tækifæri fyrir sýningargesti til að máta sig inn í líf og störf formæðrana.

Í auglýsingu frá safninu er spurt; „Viltu deita fortíðina. Ef svo er, ertu innilega velkomin(n) á sögusýninguna. Hvernig væri skella sér og fræðast um fæðingar, menntun, vinnu, hjúskap, ljóð og  kvenskörunga?“

 „Við á safninu skorum á Valentínusarpör sem og aðra góða gesti til sjávar og sveita að koma og gera sér dagamun á sunnudaginn? Við lofum skemmtilegri stemningu og ástarpungum og kaffi í tilefni dagsins. Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir,“ segir í auglýsingu frá safninu.

Allir eru hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga