Nöldrið | 02. mars 2016 - kl. 21:51
Marsnöldur

Langþráður íbúafundur var haldinn á Blönduósi í síðasta mánuði. Þar fengust ítarlegar upplýsingar um sorphirðumál bæjarins og flest sem tengist förgun úrgangs frá heimilum bæjarbúa. Á fundinum var einnig rætt um ökuhraða og öryggismál á götum bæjarins og sýndist sitt hverjum um þau mál. Lýstu einhverjir yfir áhyggjum af hraðakstri á þjóðveginum í gegnum bæinn. Þá bar á góma ástand Blöndubrúarinnar og þjóðvegar 1 sem liggur gegnum bæinn og var hiti í mönnum sem eðlilegt er því bæði þjóðvegurinn og brúin eru og hafa verið lengi í afleitu ástandi. Vegagerðin hefur lítið viljað sinna um viðhald og eflaust ekki talið þörf á úrbótum þegar útlit var fyrir að farið yrði í framkvæmdir við Svínavatnsleið og vegurinn fluttur úr bænum en nú munu þær vanhugsuðu hugmyndir vera úr sögunni að mér skilst. Ráðamenn bæjarins voru eindregið hvattir til að láta nú hendur standa fram úr ermum og berja það í gegn að hafist verið handa um lagfæringar á hringtorginu, veginum og brúnni undir eins. Því eins og einhver fundargesta sagði: Það er ekki spurning um það hvort, heldur hvenær slys verður á/eða við brúna.

Í sjónvarpsfréttum í síðasta mánuði sagði frá kór í Nottingham í Egnlandi sem eingöngu er skipaður laglausu fólki. Þarna mátti sjá hóp fólks sem söng af hjartans list og ef grannt var hlustað mátti heyra að þau voru að syngja Abba lagið Dancing Queen og gleðin skein úr hverju andliti. Félagar í kórnum, sem haft var viðtal við, sögðust vart geta lýst þeirri gleði sem því fylgdi að geta sungið fullum hálsi án þess að skammast sín þrátt fyrir að hitta sjaldnast á rétta tóninn. Og gaman var að hlusta á þau. Mér svona datt það í hug hvort þarna væri ekki komið fyrirtaks skemmtiefni á Húnavökuna í sumar. Auglýsa eftir laglausu fólki um land allt, fá snjallan kórstjóra, taka nokkrar æfingar og halda söngskemmtun fyrir Húnavökugesti. Nú heyrir maður auglýstar samkomur í höfuðborginni þar sem fólk kemur saman og syngur lög sem flestir kunna (þar er nú ekki verið að leita að laglausu fólki þó eflaust megi það syngja líka). Textablöð liggja frammi, undirleikari og forsöngvari leiða sönginn og allir skemmta sér. Þetta verður sífellt vinsælla, enda vitum við sem sækjum þorrablótin hér á Blönduósi  hvað fjöldasöngurinn í Félagsheimilinu er vinsæll og spurning hvort bæjarbúar ættu ekki að taka lagið saman oftar en á þorranum.

Bráðum kemur betri  tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga. Það er reyndar svolítið í að við sjáum blóm í haga á sætum sumardögum, en þakklátur yrði ég að sjá á eftir snjónum og klakanum út í hafsauga. Það má reyndar alveg vera snjór í skíðabrekkunum fram yfir páska en svo ekki meir. Nú kjósum við okkur forseta í sumar og verða eflaust margir tilnefndir en fáir útvaldir. Það er alltaf líf og fjör í kringum kosningar, ekki síst þegar kjósa á forseta en ósköp finnst mér sumir þeir sem telja sig hæfa í embættið hafa lítið til brunns að bera. Því segi ég eins og vitur maður sagði: Gerum ekki forsetaembættið að skrípaleik, leggjum það frekar niður.

Enn standa ónýtar druslur við þjóðveg 1 og nú er farið að skipta út, ein fer og önnur kemur í staðinn.

Með von um gott vor og gleðilega páska,

Nöldri.

Höf. Nöldri

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga