Það er fagurt í Húnaþingi
Það er fagurt í Húnaþingi
Fréttir | 29. apríl 2016 - kl. 07:11
Austur-Húnavatnssýsla í flugvélum Icelandair

Austur-Húnavatnssýsla mun næstu þrjú árin verða kynnt í sjónvarpsþáttunum Unique Iceland sem sýndir eru um borð í flugvélum Icelandair. Blönduósbær og Húnavatnshreppur hafa í samstarfi gert samning við Icelandair um gerð og birtingu kynningarefnis í markaðskerfi flugfélagsins. Samningurinn er til þriggja ára og verður kynningarefnið einnig á vefsíðu og í fréttablaði Icelandair. Tökulið frá Sagafilm hefur nú þegar tekið upp efni úr sveitarfélögunum sem notað verður í kynninguna.

Icelandair hefur framleitt sjónvarpsþættina Unique Iceland síðan árið 2011 í samráði við markaðsskrifstofur og ferðaþjónustuaðila á Íslandi. Þættinum er fyrst og fremst ætlað að selja áfangastaðinn Ísland og um leið að skemmta, fræða og upplýsa ferðamenn um land og þjóð.

Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi segir að markmiðið með samningnum sé fyrst og fremst að vekja athygli á svæðinu. „Við höfum í auknum mæli verið að færa okkur yfir í aðra miðla en prentmiðla til að vekja athygli á okkur eins og samfélagsmiðla og netmiðla. Ferðaþjónusta er sífellt að vaxa hjá okkur. Fleiri gististaðir að opna og svo getum við tekið við töluvert fleiri ferðamönnum áður en menn fara að verða varir við átroðning. Þannig að við eigum mikið inni,“ segir Arnar Þór og vonast hann til þess að kynningin selji ferðamanninum þá hugmynd að koma í Austur-Húnavatnssýslu til að dvelja í fallegu umhverfi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga