Fréttir | 19. maí 2016 - kl. 14:39
Húnavallaskóli hlaut verðlaun í samkeppninni Tóbakslaus bekkur

Húnavallaskóli hefur hlotið verðlaun í samkeppninni Tóbakslaus bekkur en tíu bekkir frá tíu skólum sem sendu inn lokaverkefni unnu til verðlauna. Samkeppnin er á meðal tóbakslausra 7., 8. og 9 bekkja í skólum landsins skólaárið 2015-2016. Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í keppninni.

Á skólaárinu þurftu bekkirnir að staðfesta fimm sinnum að þeir væru tóbakslausir og voru þá með í útdrætti um vinninga. Vinningarnir voru húfur frá 66° Norður en auk þess fengu allir þátttakendur spilastokk að gjöf.

Tíu bekkir frá tíu skólum sem sendu inn lokaverkefni unnu til verðlauna. Verðlaunaupphæðin nemur 5.000 krónum fyrir hvern skráðan nemanda í bekknum sem þeim er frjálst að ráðstafa að vild.

Verkefni Húnavallaskóla var unnið í upplýsingatæknikennslu hjá Sonju Suska í 7. og 8. bekk af 11 nemendum bekkjanna.

Eftirtaldir bekkir hljóta verðlaun (hægt er að smella á hvern skóla til að sjá lokaverkefnið):

Breiðagerðisskóli, 7. SV

Grundaskoli, 7. UÁ

Glerárskóli, 8. SV

Hólabrekkuskóli, 73

Húnavallaskóli, 7. og 8. bekkir

Hrafnagilsskóli, 7. bekkur

Langholtsskóli, 7. GP

Víðistaðaskóli, 7. SS

Vogaskóli, 7. bekkur

Vættaskóli, 9. LM

Til að eiga möguleika á fyrstu verðlaunum þurftu nemendur bekkjanna að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Nánari útfærsla var ekki skilgreind til að þrengja ekki hugmyndir að verkefnum en beðið var um að þeim væri skilað á rafrænu formi.

Við gerð margra verkefna var leitað út fyrir skólastarfið og þannig stuðlað að samvinnu, miðlun og öflun þekkingar um skaðsemi tóbaksnotkunar.

Mörg áhugaverð verkefni bárust og má sem dæmi nefna leiknar stuttmyndir, fræðslufyrirlestra, frumsamin lög og veggspjöld.

 

 

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga