Fréttir | 24. maí 2016 - kl. 08:45
Æfingabúðir á skotíþróttasvæði Markviss

Segja má að fyrstu alþjóðlegu æfingabúðirnar í haglagreinum hér á landi séu í gangi þessa dagana á skotíþróttasvæði Skotfélagsins Markviss á Blönduósi. Einn af landsliðsmönnum Grænlands, Poul Erik Mathiasen tekur þátt í æfingunum auk félagsmanna í Markviss. Þjálfari er Englendingurinn Allen Warren.

Þetta er í annað sinn sem Allen kemur á skotíþróttasvæði Markviss til að þjálfa og vona forsvarsmenn skotfélagsins að hægt verði að gera æfingabúðirnar að árlegum viðburði.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga