Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:01 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:01 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:01 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:01 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:01 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:01 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Starf fræðslustjóra í Austur Húnavatnssýslu er auglýst laust til umsóknar. Um er að ræða 80% starf hjá Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu sem er byggðasamlag sveitarfélaganna, Blönduósbæjar, Skagastrandar, Húnavatnshrepps og Skagabyggðar. Undir starfið heyra leikskólar og grunnskólar í viðkomandi sveitarfélögum. Umsóknarfrestur er til 3. júní næstkomandi.
Helstu verkefni:
-
Ráðgjöf og stuðningur við skólastarf, þar á meðal kennsluráðgjöf.
-
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur skóla í ýmsum þáttum sem snúa að starfi skólanna.
-
Skipulag og eftirlit með sérfræðiþjónustu við skóla.
-
Umsjón með endurmenntun og þróunarstarfi.
-
Eftirlit með skólastarfi í fræðsluumdæminu.
-
Þverfagleg vinna að málefnum skólabarna ásamt starfsmönnum félagsþjónustu.
-
Stefnumótun í málaflokkum sem falla undir starfssvið fræðslustjóra.
-
Samskipti við aðila utan sveitarfélagsins í fræðslumálum.
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
-
Framhaldsmenntun í uppeldis- og menntunarfræðum.
-
Leik- eða grunnskólakennararéttindi æskileg og góð þekking á báðum skólastigum.
-
Þekking og reynsla af helstu skimunar- og greiningartækjum sem notuð eru innan leik- og grunnskóla.
-
Reynsla af störfum innan skólakerfisins nauðsynleg.
-
Skipulagshæfileikar, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum.
-
Góð íslenskukunnátta.
-
Reynsla af stjórnun æskileg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri á Skagaströnd, 455 2700 netfang magnus@skagastrond.is.
Umsóknarfrestur er til 3. júní 2016 og skal stíla umsókn á Félags og skólaþjónustu A-Hún, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd, merkt fræðslustjóri eða senda umsókn á framangreint netfang.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |