Fréttir | 27. maí 2016 - kl. 14:31
Orgeltónleikar í Hólaneskirkju

Sunnudaginn 29. maí n.k. verður Eyþór Franzson Wechner organisti með tónleika í Hólaneskirkju kl. 20:00. Eyþór er mjög hæfileikaríkur organisti og verður gaman að sjá hann taka orgel kirkjunnar til kostanna.

Það er ómetanlegt fyrir samfélag okkar að hafa svo hæfileikaríkan listamanna í starfi hjá okkur, því skora ég á alla sem mögulega geta mætt á tónleikana komi og fylli kirkjuna og sýni í verki að starf Eyþórs sé metið að verðleikum.

Aðgangseyrir verður kr. 2.000 fyrir fullorðna en frítt fyrir börn og unglinga. Enginn posi á staðnum.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga