Fréttir | 30. maí 2016 - kl. 20:06
Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins opnuð

Síðastliðinn sunnudag var árleg sumarsýning í Heimilisiðnaðarsafninu opnuð að viðstöddu fjölmenni. Að þessu sinni er það Anna Þóra Karlsdóttir úr Reykjavík sem sýnir í safninu. Yrkisefni Önnu Þóru hefur gjarnan verið náttúran og lífsbaráttan og efniviðurinn íslenska ullin og nefnir hún sýninguna „Vinjar,“ sem minnir á gróinn blett, vin í eyðimörk, haga eða engi.

Í ávarpi Elínar Sigurðardóttur, forstöðumanns safnsins, kom fram að Anna Þóra á að baki glæsilegan feril. Auk myndlistakennslu í ýmsum skólum hefur hún tekið þátt í hátt í 50 samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Við opnunina söng Guðrún Helga Stefánsdóttir sópran, dóttir Önnu Þóru, nokkur lög við undirleik Benedikts Blöndal og Nínu Hallgrímsdóttur.

Sagt er frá þessu á Feyki.is og þar má sjá myndir frá opnun sýningarinnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga