Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:00 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:00 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:00 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:00 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:00 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:00 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Smábæjaleikar Arion banka og SAH Afurða í samstarfi við knattspyrnudeild Hvatar á Blönduósi fóru fram um helgina í blíðskaparveðri. Um 400 keppendur á aldrinum 3ja ára til 14 ára öttu kappi saman í knattspyrnu og var leikið á níu völlum. Mótið tókst vel að vanda og fóru allir, keppendur, þjálfarar, aðstandendur og aðrir gestir, glaðir til síns heima að lokinni verðlaunaafhendingu.
Þess má geta að tvö grænlensk lið mættu til leiks og er það í fyrsta skipti sem erlend lið taka þátt í Smábæjaleikum. Það var ánægjuleg viðbót við íslensku liðin sem þátt tóku. Mótið var með hefðbundnu sniði nema að því var hætt fyrr á laugardeginum svo allir gætu horft á landsleik Íslands og Ungverjalands sem var kl. 16:00. Um 350 manns horfðu á leikinn í félagsheimilinu og svo voru liðlega 500 manns í íþróttahúsinu um kvöldið en þar skemmti Ingó Veðurguð með söng og undirleik.
Á leikunum var nýtt lukkudýr frumsýnt en það er ísbjörn og heitir hann Hvati. Hvati vakti strax mikla lukku hjá ungu keppendunum og má segja að hann hafi hreinlega slegið í gegn og er hann á ansi mörgum myndum frá leikunum.
Í samtali við stjórn knattspyrnudeildar Hvatar kom fram mikið þakklæti þeirra til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem tóku þátt og gerðu þetta mót mögulegt auk þakklætis til allra styrktaraðila deildarinnar, jafnt fyrirtækja, einstaklinga og sveitarfélagsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |