Björg, Elín og börn Bjargar við afhendinguna
Björg, Elín og börn Bjargar við afhendinguna
Fréttir | 24. júní 2016 - kl. 11:08
Rausnaleg gjöf afhent Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi

Fimmtudaginn 23. júní bættist forkunnar fallegur skautbúningur/kyrtill við þjóðbúningasafn Heimilisiðnaðarsafnsins.

Það var Björg (94 ára) elsta dóttir, Kristínar Vigfúsdóttur (1891-1946) og Jóns Eyþórssonar (1895-1968) veðurfræðings, ásamt tveimur börnum og tengdabörnum sem afhentu kyrtilinn. Þau hjón áttu ættir að rekja hingað í Húnaþing. Jón  var einn af brautryðjendum á sviði veðurfræði og jöklarannsókna á síðustu öld.

Kristín móðir Bjargar saumaði kyrtilinn á árunum í kringum 1920 og er hann mikil gersemi og því ánægjulegur fengur fyrir safnið. Kyrtillinn er úr silki, svartur að lit, útsaumurinn einstaklega fallegur í gulum tónum og munstrið hennar sjálfrar. Kyrtillinn er afhentur uppsettur á gínu ásamt faldi, blæju og spöng.

Elín forstöðukona, ásamt nokkrum meðstjórnendum tók á móti gjöfinni. Sagði Elín safninu sýndan miknn heiður með því að fá kyrtilinn til varðveislu. Rifjaði einnig upp í örstuttu máli hugmynd Sigurðar Guðmundssonar, málara (1833-1874) að skautbúningnum sem hann hannaði um 1860 . En tíu árum síðar eða um 1870 er talið að hann hafi hannað kyrtilinn sem léttari búning, eins konar dansbúning, brúðar-eða fermingarbúning.

Að lokum þakkaði Elín gefendum fyrir þessa merku gjöf og þann hlýhug og virðingu sem safninu er sýnt með henni.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga