Fréttir | 18. júlí 2016 - kl. 20:15
Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi

Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi verður haldin dagana 20.-24. júlí næstkomandi í Vestur-Húnavatnssýslu í fjórtánda sinn. Hátíðin verður sett miðvikudagskvöldið 20. júlí klukkan 19 á Hafnarsvæðinu á milli Sjávarborgar og KVH á Hvammstanga. Þar verður eldurinn tendraður í eldsmerkinu. Eldssjoppan verður á staðnum og kjötsúpa í boði fyrir gesti og gangandi á meðan birgðir endast.

Klukkan 21 á miðvikudagskvöldinu verða tónleika í Félagsheimilinu Hvammstanga með Hundi í óskilum og klukkan 23 verður Pálína með gongslökun utandyra í Kirkjuhvammi, rétt fyrir ofan efra bílastæði. Gestum er bent á að koma með teppi og dýnu og vera vel klæddir.

Dagskrá fimmtudagsins er fjölbreytt en hæst ber Fjallaskokk USVH yfir Vatnsnesfjall sem hefst klukkan 13 og Selatalningin mikla sem hefst klukkan 14:30. Á fimmtudagskvöldinu verður tónlistarveislan Melló Músíka með heimafólki í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst hún klukkan 21. Bar er á svæðinu og 18 ára aldurstakmark.

Leiklistarnámskeið verður haldið á föstudeginum með Óla Gunnari og Ásgrími Helgasonum og keppt verður í Héraðsblakmóti og Heimsmeistaramóti í kleppara svo sitthvað sé nefnt. Þá verður einnig púttmót Flemmings við heilsugæsluna á Hvammstanga. Um kvöldið, klukkan 21 verða tónleikar með Sigríði Thorlacius í klettaborginni Borgarvirki. Á miðnætti verður svo tónleikar með Retro Stefson í Félagsheimilinu Hvammstanga.

Laugardagurinn á hátíðinni er sannkallaður fjölskyldudagur en þá verður boðið upp á sápurennibraut, hjólanámskeið, fótboltaleik, hoppukastala og margt fleira. Sirkus Íslands mætir og sýnir hæfileika sína í sirkuskúnstum og BMX Brós verða með sýningu. Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra verða afhentar og í boði verða ís og blöðrur fyrir alla. Á laugardagskvöldinu verður fjölskyldudansleikur í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst hann klukkan 19 með hljómsveitinni No More Drama. Klukkan 22:30 verða tónleikar á sama stað með Jónasi Sig og ritvélum framtíðarinnar og á miðnætti verður dansleikur fyrir 16 ára og eldri í félagsheimilinu með hljómsveitinni No More Drama.

Dagskrá hátíðarinnar endar svo á sunnudeginum 25. júlí með leiksýningu leikhópsins Lottu en sýnt verður leikritið um Litaland á túninu við mjólkurstöðvarhúsið á Hvammstanga.

Frábær dagskrá, fjölbreytt og skemmtileg og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Dagskrána í heild sinni má nálgast hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga