Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:24 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:24 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:24 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:24 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:24 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:24 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Alls voru 113 gæsir merktar á Einarsnesi við Blöndu í gær og nýjasta höfuðgæs Blönduósinga, grágæsin Blanda fékk gervihnattasendi. Þetta kemur fram á Facebook síðu Jóns Sigurðssonar sem fylgdist með þegar Arnór Þórir Sigfússon, gæsasérfræðingur, merkti gæsirnar. Sextán ár eru síðan gæsir voru síðast merktar á Blönduósi. Jón segir að krakkarnir í Blönduvirkjun hafi staðið sig frábærlega við að smala saman gæsunum.
„Krakkarnir í Blönduvirkjun stóðu sig frábærlega og má segja að dagur íslenska smalahundsins hafi verið í hávegum hafður í dag þó svo smalarnir hafi ekki verið með hringaða rófu,“ segir Jón Sigurðsson á Facebook síðu sinni í gær.
Segja má að Jón hafi átt frumkvæðið af því að gervihnattasendi hafi verið komið fyrir á grágæsinni Blöndu en Tryggingamiðstöðin studdi verkefnið. Gæsin er með merki á hálsinsum með bókstafnum B. Hægt verður að fylgjast með ferðum hennar næstu tvör árin. Hinar gæsirnar voru merktar með áberandi appelsínugulu merki um hálsinn.
Á Facebook síðum Jóns og Róberts Daníels Jónssonar má sjá fjölmargar myndir frá gærdeginum þegar gæsirnar voru merktar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |