Fréttir | 20. júlí 2016 - kl. 09:09
“dýrara fyrir sveitarfélagið að leggja nýjan streng en að leigja þann sem fyrir er

Í pistli sem Valdimar Guðmannsson skrifar hér á Húnahorninu gagnrýnir hann fyrirhugaða lagningu ljósleiðara um land sitt Bakkakot. Hann bendir á að nú eigi að leggja nýjan streng fyrir ljósleiðara í gegnum landið þrátt fyrir að slíkur strengur hafi verið lagður þar í gegn um leið og hitaveitulögnin til Skagastrandar varð gerð fyrir um þremur árum síðan. Valdimar finnst mjög illa farið með skattpeninga landsmanna.

Valdimar finnst það með öllu óskiljanlegt af hverju ekki megi nota strenginn sem fyrir er í stað þess að leggja nýjan streng í gegnum landið. Í pistli sínum nefnir hann tvær ástæður sem honum hafi verið gefnar upp. Að leigan á þeim streng sem fyrir sé svo dýr að það borgi sig fyrir sveitarfélagið að kaupa og leggja nýjan og að styrkur frá ríkinu til ljósleiðaravæðingar sveitarfélagsins falli niður ef sveitarfélagið eigi ekki strenginn sjálft.

Ríkisútvarpið fjallaði um þetta í fréttum sínum í gær ræddi við Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóra á Blönduósi sem tekur undir með Valdimari og segir alla í raun sammála honum. Það eru allir náttúrlega sammála því sem þarna kom fram og það er hálf ankannalegt að það skuli vera til staðar ljósleiðari og það sé ekki hægt að nota hann vegna þess að í rauninni þegar við höfum fengið okkar mat frá okkar ráðgjöfum og hönnuðum þá þykir það dýrara að ná strengnum upp sem fyrir er og tengja hann og síðan að leigja af viðkomandi aðila. Fyrst það er dýrara þá var tekin ákvörðun um það að leggja nýjan streng,“ segir Arnar Þór í samtali við Ríkisútvarpið.

Blönduós fær um 12 milljónir króna í fjárstyrk frá fjarskiptasjóði fyrir uppbyggingu ljósleiðara á svæðinu að sögn Arnars Þórs. Styrkurinn er hluti af verkefni til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga