Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:04 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:04 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:04 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:04 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:04 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:04 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Selatalningin mikla fer fram í dag en þetta er tíunda árið í röð sem Selasetrið á Hvammstanga stendur fyrir talningunni. Taldir verða selir á Vatnsnesi og Heggstaðanesi í Vestur-Húnavatnssýslu og óskar Selasetrið eftir þátttöku sjálfboðaliða við talninguna en markmiðið með henni er að afla upplýsinga um fjölda sela á svæðinu. Þeir sem vilja taka þátt geta mætt á Selasetur Íslands á Hvammstanga klukkan 14:30 í dag.
Í kynningarbæklingi frá Selasetrinu segir að þátttaka í selatalningunni sé frábært tækifæri til þess að fá innsýn í starfsemi Selasetursins. „Okkar markmið er að þróa sjálfbæra ferðamennsku í skoðun villtra dýra og rannsaka ástand selastofna við Íslandsstrendur. Við reiðum okkur á sjálfboðaliða til aðstoðar við rannsóknir,“ segir í bæklingnum.
Á meðan selatalningunni stendur vinna sjálfboðaliðar með starfsmönnum Selasetursins við að telja seli meðfram Vatnsnesi og Heggstaðarnesi. Strandsvæðinu er deilt í smærri einingar (2-7 km) og sjálfboðaliðum og starfsmönnum skipt í hópa. Áður en lagt er af stað eða klukkan 14:30, verður rannsóknarviðfangsefni Selasetursins kynnt ásamt þeim rannsóknum sem hún mun gagnast. Þegar talningum er lokið verður boðið upp á kaffi og með því og sérfræðingar Selasetursins munu sitja fyrir svörum.
Selatalningin mikla er ekki ætluð börnum yngri en 5 ára. Börn undir 16 ára aldri þurfa að vera í fylgd foreldris/forráðamanns.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |