Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:01 0 0°C
Laxárdalsh. 09:01 0 0°C
Vatnsskarð 09:01 0 0°C
Þverárfjall 09:01 0 0°C
Kjalarnes 09:01 0 0°C
Hafnarfjall 09:01 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 25. júlí 2016 - kl. 18:52
580 selir taldir

Selatalningin mikla fór fram í tíunda skipti 21. júlí síðastliðin og sáust 580 selir sem er meira en síðustu tvö ár, en þó minna en árlegt meðaltal hefur gefið til kynna. Alls tóku 57 innlendir og erlendir sjálfboðaliðar þátt í talningunni þetta árið. Markmið talningarinnar er að fylgjast með fjölda og staðsetningu sela á um 100 km strandlengju Vatnsness og Heggstaðarness á Norðurlandi vestra.

Auk þess er selatalningin frábært tækifæri fyrir almenning til þess að fræðast um selarannsóknir þar sem þátttakendur aðstoða við að safna gögnum og upplifa vísindalega vettvangsvinnu.

Sjálfboðaliðar eru mikilvægasti þáttur þessarar rannsóknar. Þeirra hjálp gerir það mögulegt að safna gögnum á stóru svæði á þeim stutta tíma meðan fjara varir og flestir selir liggja á landi. Í tilkynningu frá Selasetrinu er þeim þökkuð hjálpin.

Þau 10 ár sem Selatalningin mikla hefur farið fram hafa sést að meðaltali 760 selir hvert sinn. Árin 2008 og 2009 sáust flestir selir eða yfir 1.000 selir bæði árin en árið 2012 sáust aðeins 422 selir. Í ár sáust alls 580 selir eins og áður sagði.

Í tilkynningu Selasetursins segir að þessar tölur eigi aðeins við um fjölda sela á Vatnsnesi og Heggstaðarnesi á þeim tíma sem Selatalningin mikla fer fram. Þrátt fyrir að fækkun virðist eiga sér stað séu ýmsir þættir sem geti haft áhrif á fjölda þeirra sela sem sjást hvert sinn. Veður hafi mikil áhrif en líkt og við mennirnir kjósi selir helst að liggja á þurru í vindlitlu, heitu og sólríku veðri. Í ár var þokukennt, létt úrkoma, um 9 gráðu hiti og nokkur vindur en í slíkum aðstæðum getur verið ákjósanlegra fyrir suma seli að svamla um í sjónum frekar en að liggja á landi. 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið