Fréttir | 25. júlí 2016 - kl. 20:18
Listasýningin á Blönduósi

Fimmtudaginn 28. júlí ætla listamenn júlí mánaðar hjá Textílsetri Íslands á Blönduósi að bjóða til sýningar í Bílskúrsgalleríinu við Kvennaskólann klukkan 17:00. Sýningin heitir „By My Hands“ og eru það listamennirnir Katarina Riesing, Sarah Finkle, Charlotte Aveline, Juliette Vergne, Kim Nemeth, Nidiya Kusmaya og Teyana Neufeld sem standa að henni.

Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga