Hamarsbúð
Hamarsbúð
Fréttir | 29. júlí 2016 - kl. 06:03
Kaffihlaðborð í Hamarsbúð

Í áraraðir hafa Húsfreyjurnar boðið upp á veislur í Hamarsbúð á Vatnsnesi. Um verslunarmannahelgina ætla þær að bjóða upp á kaffihlaðborð með rjómapönnukökum, smurbrauði og öðru fjölbreyttu meðlæti að þeirra hætti. Opið verður milli klukkan 14 og 18, laugardaginn 30. júlí og sunnudaginn 31. júlí.

Verð er 2.000 krónur en 1.000 krónur fyrir 6-12 ára. Ágóðinn af veislum Húsfreyjanna hefur ávallt runnið til góðgerðarmála í héraðinu og svo mun einnig vera núna.

Þá mun Dóra Sigurðardóttir sýna málverk í Hamarsbúð. Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga