Fréttir | 28. júlí 2016 - kl. 05:46
Skemmtun á sumarkvöldi í Nesi

Opið hús verður í listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd í dag frá klukkan 17 til 20. Þar koma fram hinir ýmsu listamenn sem dvalið hafa í listamiðstöðinni í júlí. Alexandra Elliott sýnir dans í fjörunni klukkan 17 og strax á eftir verður farið í kirkjuna þar sem Simon Petersson mun spila á píanó og syngja og Kleb Kanasevich spilar á klarínett.

Að því loknu verður farið í Nes listamiðstöðina þar sem gestir geta séð listaverk annarra listamanna og spjallað við þá.   

Nes er staðsett á Fjörubraut 8. Heitt verður á könnunni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga