Hjalti og Lára. Ljósmynd: Daníel Starrason
Hjalti og Lára. Ljósmynd: Daníel Starrason
Fréttir | 02. ágúst 2016 - kl. 22:28
Ný plata frá Hjalta og Láru

Blönduósingurinn Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir stefna á að gefa út sína aðra plötu 25. ágúst næstkomandi og verður útgáfunni fagnað með útgáfutónleikum á Græna Hattinum og í Fríkirkjunni, Reykjavík. Upptökur fóru fram á Akureyri í júní undir stjórn Stefáns Arnar Gunnlaugssonar, en fjöldi norðlenskra listamanna leika með dúóinu á plötunni.

Plötuna prýða að mestu ný frumsamin lög og textar Hjalta og Láru, en Hildur Eir Bolladóttir samdi texta við eitt lag og einnig flytja þau Vornæturljóð Elísubetar Geirmundsdóttur.

Hjalti og Lára standa nú fyrir áheitasöfnun á Karolinafund.com þar sem hægt er að leggja útgáfunni lið og panta nýju plötuna, miða á útgáfutónleika eða einkatónleika. Söfnunin hefur gengið vel, en enn vantar aðeins upp á að markmið þeirra náist.

Hlusta má á fyrsta lagið á plötunni hér: https://m.youtube.com/watch?v=1tinTeUDYhw

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga